no ad box by maytardesigns.com please note that covering up your ad.s is most likely against your terms of service! use at your own risk!
...:::nýtt:::...
meðlimir matrix eru.....
bloggsíður meðlima
skemmtilegar síður
.
á döfinni....

síðustu "hittingar"....

6.apríl
kaffihúsahittingur á vegamótum kl. 19:00

20.desember
jólasaumó hjá þóru kl. 20:30

14.nóvember
rautt kvöld hjá gerði beibí - mæting kl. 20:00... allar að mæta í einhverju rauðu & með lítinn rauðan pakka c";)

22.september
sælkerakvöld hjá herdísi kl. 19:00

.
saumaklúbburinn matrix

daddara....


~ fimmtudagur, nóvember 27, 2003
 
bletzaðar stúlkur!!
ég verð ekkert sár þó þetta verði 19. ef það hentar ykkur betur.... ég get þá bara hitt ykkur í bænum eftir á ef þið ætlið eitthvað að tjútta c";)

~ þriðjudagur, nóvember 25, 2003
 
blessaðar....
já gaurinn í röðinni var nú soldið skondinn.. þó hann hafi verið orðinn soldið þreyttur í endann... hehe... en í sambandi við saumóinn þá er ég reyndar ekki laus þann 19.des.... (jólaglögg í skólanum.. jíhhhaaa) en 20. er alveg frír og reyndar helgin á undan líka en þá eru reyndar ekki allar búnar í prófum... en við þurfum endilega bara að festa niður einhvern dag....

~ fimmtudagur, nóvember 20, 2003
 
sælar gellur...
og takk fyrir síðast.. mikið dansað og mikið fjör.. næsti saumaklúbbur segir Helga.. hmmm??? hvenær ferðu annars út helga??? ég verð að játa það að byrjun des er ekki beint heppilegur tími fyrir mig þar sem jólaprófin mín byrja 3.des en er ég reyndar búin þann 9.des og er ég laus eftir það... þá þurfa hinar gellurnar kannski bara að segja til um hvenær þær eru lausar......

~ föstudagur, nóvember 14, 2003
 
jæja galz.....
þá er komið að því... rauða kvöldið í kvöld og vona ég allar séu búnar að finna sér eitthvað rautt og fallegt til að mæta í... ég & gerður ætlum að versla fyrir herlegheitin á eftir og verður þetta örugglega um 1000kall á mann...

annars ætlaði ég aðallega að minna ykkur á að kaupa eitthvað lítið rautt sem einhver heppin getur notað um kvöldið, verður gaman að giska á hver keypti hvað... daddara....

og svo vil ég leggja áherslu á það sem gerður sagði að endilega fáið ykkur smá bjór meðan þið gerið ykkur sætar svo ég verði ekki alveg út úr kú þegar ég mæti... hehe...

~ þriðjudagur, nóvember 11, 2003
 
sælar.... ég og gerður ætlum að pæla aðeins í þessu í kvöld og finna eitthvað sniðugt út úr þessu og vonandi verðum við með meiri upplýsingar á morgun... en mér líst vel á þetta sem gerður segir.... 500-1000kr. í bús og fínerí en spurning með gjafadótið... hljómar mjög sniðug hugmynd... allar að kaupa eitthvað lítið rautt sem einhver önnur getur notað um kvöldið.... hehe... veit samt ekki hvort manni detti eitthvað sniðugt í hug til að kaupa... en gæti samt sett enn meiri svip á partýið ekki satt??? endilega látið okkur vita hvað ykkur finnst og ég vona endilega að að erna og laila geti mætt líka... bara vera massaduglegar í vikunni og þá er svo gaman að kíkja aðeins á lífið á föstudaginn ekki satt???

~ föstudagur, nóvember 07, 2003
 
það virðist sem flestar ætli nú að mæta.. sem er mjög gott.. vantar samt ennþá svar frá ernu.. getur ekki einhver tjékkað á henni??? vona nú að allar mæti í einhverju rauðu.. er það ekki aðaltilgangurinn með þessu??? hehe... ég á rauðan hlýrabol ef einhverri vantar??

~ fimmtudagur, nóvember 06, 2003
 
líst rosavel á þetta hjá henni gerði... rautt-matrix þema... grrr.... held það sé allavega ljóst að ég og helga mætum í leddurunum.. hehe.... ég mæti vel hress.. en veit samt ekki með rauða varalitinn.. aldrei verið mikið fyrir solleiðis... bæti það upp með einhverju öðru... daddara... en þá þurfum við endilega að ákveða upphæð og svona, 500 - 1000 kall hljómar mjög fínt, fer kannski eftir því hve margar mæta... endilega stúlkur verið duglegar að commenta og láta vita hvort þið komist ekki örugglega...

~ þriðjudagur, nóvember 04, 2003
 
sælar..
ég er endilega til í eitthvað þema... rautt hljómar td. mjög vel.... eða ef einhver er með hugmynd um eitthvað annað.. endilega tjá sig c";) og mér líst líka svaka vel á pakkastemmninguna... ég er ekki með í vínpottinum þar sem ég er svo mikið baby... svo þið megið alveg ráða því.... en mér er farið að lítast svaka vel á þetta kvöld...
design by may
maystar design